Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18

66. ársþing HSÍ

04.05.2023

 

66. ársþing Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) fór fram í Laugardalshöll 30.apríl sl. Mæting var góð en 84 sátu þingið, þar af 62 þingfulltrúar frá aðildarfélögunum.  Helga Þórðardóttir var kjörin þingforseti og fyrir hönd ÍSÍ mætti Hafsteinn Pálsson, 2. varaforseti ÍSÍ og ávarpaði þingið.  Í upphafi þings var látinna félaga minnst og risu þingfulltrúar úr sætum til að heiðra minningu þeirra.

Kosið var til stjórnar næstu tvö árin.  Endurkjörin í stjórn voru Páll Þórólfsson (landsliðsnefnd karla), Inga Lilja Lárusdóttir (fræðslu- og útbreiðslunefnd) og Davíð Lúther Sigurðsson sem kemur nýr inn í stjórn HSÍ en hann verður formaður markaðsnefndar. Fyrir í stjórn voru Guðmundur B Ólafsson (formaður), Reynir Stefánsson (varaformaður), Arnar Þorkelsson (gjaldkeri), Guðríður Guðjónsdóttir (landsliðsnefnd kvenna) og Kristján Gaukur Kristjánsson (dómaranefnd). 
Áfram sitja í varastjórn Alfreð Örn Finnsson, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Ragnar Lárus Kristjánsson.

Velta HSÍ á árinu var um 411 milljónir kr. árið 2022 og hagnaður sambandsins rúmar 42 milljónir.

Teknar voru fyrir nokkrar breytingatillögur, þ.á.m sú tillaga að ein deild væri spiluð kvennamegin, en sú tillaga var felld. Einnig lá fyrir tillaga um breytingar á umspili um laust sæti í Olísdeild karla en hún var einnig var felld.

Árskýrslu HSÍ og frekari upplýsingar af þinginu má finna á hsi.is

Myndir með frétt