Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
8

Fararstjórafundur Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Maribor, Slóveníu

24.04.2023

 

Dagana 19. til 20. apríl sl. fór fram fararstjórafundur vegna Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar, sem haldin verður í Maribor, Slóveníu 23. til 29. júlí 2023. Keppnin er fyrir evrópsk ungmenni á aldrinum 14 -18 ára.

Brynja Guðjónsdóttir, sérfræðingur á Afreksíþróttasviði ÍSÍ og Linda Laufdal, sérfræðingur á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ, mættu á fararstjórafundinn en þær verða fararstjórar á leikunum að þessu sinni. Á fundinum var farið yfir keppnisgreinar, aðstöðumál, skráningar, samgöngur og annað sem þarf til að undirbúa leika sem þessa. Á fundinn mættu 71 þátttakandi frá 48 löndum.  Fundurinn gekk vel og undirbúningur var til fyrirmyndar.

Alls verður keppt í 11 íþróttagreinum, þ.e. áhaldafimleikum, frjálsum íþróttum, körfubolta 3x3, handknattleik, júdó, fjallahjólreiðum, götuhjólreiðum, hjólabrettum, sundi, tennis og blaki. Keppendur frá Íslandi verða að þessu sinni 37 og taka þátt í sex greinum, sundi, tennis, frjálsum íþróttum, handknattleik, júdó og áhaldafimleikum.


Keppnisaðstaðan sem boðið verður upp á í Maribor er með ágætum. Keppendur, þjálfarar, liðsstjórar og aðstoðarfólk mun gista á stúdentagörðum sem staðsettir eru á þremur stöðum í borginni.
Í Maribor búa um 150.000 manns.  Flestir keppnisviðburðirnir fara fram í miðbænum og stutt er á milli allra íþróttamannvirkja. 

Líney Rut Halldórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ og nú ráðgjafi hjá sambandinu, sat einnig fundinn en hún er formaður EOC EYOF Commission, sem er yfirnefnd Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar. Nefndin er eftirlitsnefnd með framkvæmd hátíðarinnar og gegnir ábyrgðarmiklu starfi við undirbúning og framkvæmd þessara verkefna Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC).

Finna má frekari upplýsingar um leikanna hér sem og á Facebook síðu leikanna EYOF Maribor 2023, en hún er mjög lifandi og skemmtileg.

Myndir með frétt