Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Opnað fyrir starfsskýrsluskil - framlengdur skilafrestur!

12.04.2023

 

Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þurfa allir sambandsaðilar ÍSÍ, og félög innan þeirra vébanda, að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert. 

Síðustu vikurnar hafa 
staðið yfir prófanir á lagfæringum og uppfærslum á skilakerfinu og er nú allt tilbúið fyrir starfsskýrsluskilin. Vegna þessara tafa hefur skilafrestur starfsskýrslna verið framlengdur til 31. maí nk.

Vefslóð á skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ.


Í apríl og maí verður boðið upp á kynningu og fræðslu á starfsskýrsluskilum í kerfinu. Þegar nær dregur verða nánari upplýsingar um fyrirkomulag sendar á hvert hérað, ásamt hlekk á skráningarsíðu.

Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um félagsmenn og iðkendur á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2022, ásamt innslegnum lykilupplýsingum úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár (2022) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk. Einnig þarf að skila skoðuðum ársreikningi og núgildandi lögum í pdf. formi inn í skilakerfið. 

Nánari upplýsingar gefur Elías Atlason, sérfræðingur – upplýsingatækni / skilakerfi.  Netfang: elias@isi.is