Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
27

Íþróttavika Evrópu

30.06.2021

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur líkt og síðastliðin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. 
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive.

Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Almenningsíþróttasvið ÍSÍ mun í samstarfi við íþróttahéruð landsins skipuleggja íþróttaviku Evrópu um allt land og vonandi á sem flestum stöðum. Það er ÍSÍ mikilvægt að fá sem flest íþróttahéruð til liðs við verkefnið til að ná að hvetja sem flesta landsmenn til að hreyfa sig og finna sér hreyfingu við hæfi og í senn skemmtileg.

Eftir Covid þá hefur orðið mikil vitundavakningu um lýðheilsu og við skulum nýta okkur þann meðbyr.

Á næstunni verður birt nánari dagskrá viðburða.

Hér má skoða heimasíðu BeActive www.beactive.is og svo erum við líka á Facebook https://www.facebook.com/beactiveiceland