Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Skráningarleikur Lífshlaupsins og Rásar2

07.02.2020

Lífshlaupið er í fullum gangi. Á hverjum virkum degi eru dregnir út heppnir þátttakendur sem hafa skráð sig til keppni og fær viðkomandi glaðning frá einum af styrktaraðilum Lífshlaupsins.

Vefsíða Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.

Nöfn vinningshafa verða lesin upp í þættinum „Morgunverkin“ á Rás2.
Styrktaraðilar Lífshlaupsins í ár eru: MS, World Class, Primal Iceland, Keiluhöllin, Skautahöllin, Klifurhúsið og Ávaxtabíllinn.
Í boði eru gjafabréf í klifur, baðstofu, í keilu, á skauta, klippikort í líkamsrækt, ostakörfur, kókómjólk/Hleðsla og ávaxtabakkar. Aukavinningar frá Krauma og Nivea.

Það borgar sig að skrá sig og vera með.

Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur, 5. - 18. febrúar.
  • Vinnustaðakeppni í þrjár vikur, 5. - 25. febrúar.
  • Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.