Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Hjólum í skólann hefst 10. september

03.09.2014Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni fer fram í annað sinn dagana 10.-16. september 2014 í tengslum við evrópsku samgönguvikuna. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. 

Starfsfólk og nemendur framhaldsskólanna eru hvattir til að skrá sig til leiks. Keppt verður um að ná sem flestum þátttökudögum miðað við heildarfjölda nemenda og starfsfólks skólans. 

Opnað hefur verið fyrir skráningu á  http://www.hjolumiskolann.is/. 

Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embættis landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands Íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið að frumkvæði Hjólafærni á Íslandi og tók hann til starfa síðsumars 2012.

Nánari leiðbeiningar um skráningu skóla/liða/ liðsmanna er að finna á www.hjolumiskolann.is undir „Um Hjólað“.

Skoða veggspjaldið Framhaldsskólakeppni 10.-16. september