Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing ÍF 2023

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing BLÍ 2023

Ársþing Blaksambands Íslands verður haldið í...
31

Körfuknattleiksmaður í bann fyrir brot á Lögum ÍSÍ um lyfjamál

28.06.2019

Lyfjaeftirlit Íslands tilkynnti í dag að Oddur Rúnar Kristjánsson, leikmaður meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá Val, hafi verið úrskurðaður í þriggja ára og átta mánaða óhlutgengi fyrir brot á Lögum ÍSÍ um lyfjamál.

Oddur Rúnar gekkst undir lyfjapróf utan keppni þann 16. október 2018 og greindust niðurbrotsefni metandienone í sýni hans. Metandienone er í flokki S1 (anabólísk efni) á bannlista WADA yfir bönnuð efni og aðferðir. Óhlutgengið er frá 16. október 2018 að telja.