Heiðurshöll ÍSÍ

Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar.
Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall okkar framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum.
Hægt er að skoða Heiðurshöllina hér
Ásgeir Sigurvinsson og Pétur Guðmundsson voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á athöfninni Íþróttamaður ársins 2014 í janúar sl.
Hér má sjá myndbönd sem RÚV setti saman fyrir athöfnina: