Bjarnveig Ingvadóttir nýr formaður UMSE

Óskar Þór Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Einnig lét Kristlaug María Valdimarsdóttir af störfum sem ritari sambandsins. Nýr formaður UMSE var kjörin Bjarnveig Ingvadóttir frá Umf. Svarfdælum, en hún snýr nú aftur til starfa innan íþróttahreyfingarinnar eftir nokkurra ár hlé. Ritari var kjörin Sigrún Finnsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir var endurkjörin sem meðstjórnandi. Í varastjórn, voru endurkjörin Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Eiríksson. Svanbjört Brynja Bjarkadóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn og var í hennar stað kjörinn Gunnar Ingi Ómarsson. Aðrir í stjórn UMSE eru Edda Kamilla Örnólfsdóttir, varaformaður og Einar Hafliðason, gjaldkeri.
Á þinginu var að venju veittur Félagsmálabikar UMSE. Bikarinn er veittur af stjórn til þess félags sem talið er hafa staðið sig hvað best bæði varðandi íþróttastarf og almennt félagsstarf. Að þessu sinni hlaut Umf. Smárinn bikarinn og tók formaður félagsins, Jónína Garðarsdóttir, við viðurkenningunni
Þinggerðin verður aðgengilega á vefsíðu sambandsins, www.umse.is, innan skamms.