Golf
2009, 2018 og 2019
Íþróttamaður Akraness:
2007-2010, 2016-2018
Hluti af liði ársins á Íslandi 2018
LET mótaröðin:
2017-2020 og er enn með fullan keppnisrétt
2018 3. sæti í Bonville Ladies Open
2017 3. sæti í Sanya Ladies Open
Fædd:
4. desember 1989
Hæð:
167 cm
Íslandsmeistari:
2017 í höggleik
2012 í höggleik
2010 í holukeppni
2009 í höggleik
Sigurvegari á alþjóðlegum mótum:
2012 Alabama, Chris Banister Gamecock Classic
2008 Cyprus Open
2008 Faldo Series
Besti árangur á heimslista:
2018 nr. 299

.jpg?proc=200x200)

Valdís Þóra Jónsdóttir er afrekskylfingur og margfaldur Íslandsmeistari í golfi. Hún stundaði nám við Texas State University í Bandaríkjunum á árunum 2009-2013. Hún hefur þrisvar sinnum verið kjörin Kvenkylfingur ársins.
Hún lék á sínu öðru tímabili í röð á LET Evrópumótaröðinni árið 2018, sterkustu mótaröð í Evrópu hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki. Hún endaði í 38. sæti á stigalistanum, sem er besti árangur hennar á LET. Hún komst í gegnum niðurskurðinn á 5 mótum af alls 12 sem hún tók þátt í. Besti árangur hennar var 3. sæti á LET-móti í Ástralíu, sem er jafnframt besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á atvinnumóti í golfi í efsta styrkleikaflokki. Hún tryggði sér snemma á tímabilinu áframhaldandi keppnisrétt á mótaröðinni. Valdís lék einnig á þremur mótum á LET Access atvinnumótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Hún var einnig í fjögurra manna liði Íslands sem sigraði á Evrópumótinu í blandaðri liðakeppni atvinnukylfinga á Meistaramóti Evrópu í Skotlandi.
Á árinu 2019 lék Valdís sitt þriðja tímabil á LET Evrópumótaröðinni og endaði tímabilið í 71. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Valdís náði sínum besta árangri í Ástralíu í mars þegar hún lenti í 5. sæti. Valdís var lengi vel í forystu í mótinu en hún lék á 63 höggum á fyrsta hring, sem var besta skor mótsins. Valdís komst í gegnum niðurskurðinn á 7 mótum af 14 á Evrópumótaröðinni á árinu.
Valdís er hluti af hópi íþróttafólks sem birtir pistla á vefsíðunni www.klefinn.is
Valdís Þóra er á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram.
