Framkvæmdastjórn ÍSÍ getur samþykkt að stofna nefnd um
íþróttagrein sem viðurkennd hefur verið af ÍSÍ en hefur ekki náð
þeirri útbreiðslu á landsvísu að hún nái að uppfylla kröfur ÍSÍ um
stofnun sérsambands. Íþróttin skal stunduð í a.m.k. þremur félögum
innan íþróttahéraða ÍSÍ. Heildar iðkendafjöldi í viðkomandi
íþróttagrein þarf að ná a.m.k. 50.
Hlutverk íþróttanefnda ÍSÍ er m.a. að efla viðkomandi sérgrein í
landinu. Einnig að sjá til þess að þýða og setja nauðsynlegar
reglur, löggilda dómara, ráðstafa landsmótum og staðfesta met í
samráði og samstarfi við ÍSÍ. Að auki eru íþróttanefndirnar
fulltrúar viðkomandi íþróttagreina gagnvart útlöndum og sjá um að
reglur varðandi viðkomandi íþróttagrein séu í samræmi við
alþjóðareglur í samráði og samstarfi við ÍSÍ.
Íþróttanefndirnar eru aðilar að alþjóðasérsamböndum í gegnum
ÍSÍ.