Fræðslusvið ÍSÍ

Stjórn Fræðslusviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands er skipuð af framkvæmdastjórn ÍSÍ og fer með umboð framkvæmdastjórnar í þeim verkefnum sem henni er falið. Stjórnin er skipuð þremur aðilum. Tillögur og samþykktir sviðsins skulu bornar undir framkvæmdastjórn í fundargerðum eða beinum tillögum til endanlegrar samþykktar.

Almenn markmið og verkefni sviðsins er m.a.:

-       að kynna og halda á lofti stefnu ÍSÍ í forvarnarmálum.

-       að kynna og halda á lofti stefnu ÍSÍ í jafnréttismálum.

-       að halda á lofti jákvæðri ímynd íþróttahreyfingarinnar.

-       að efla starf og verkefni Ólympíuakademíunar.

-       að efla námskeiðahald og útgáfu á fræðsluefni.

-       að halda námskeið/ráðstefnur í samstarfi við afrekssvið og almenningsíþrótta- og umhverfissvið.

-       að efla leiðtogamenntun með skipulögðum námskeiðum

-       að sjá um styrkveitingar til einstakra verkefna sérsambanda á grundvelli sérstaks umboðs sem framkvæmdastjórn veitir hverju sinni og fjárhagsáætlun leyfir.

-       að eiga samstarf við KHÍ um námskeiðahald og fræðslu.

-       að eiga samstarf við íþróttaskor KHÍ v/ íþróttabókasafns.

-       að sjá um erlend samskipti (við Norðurlöndin sérstaklega) í þeim málefnum sem sviðið hefur með að gera samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar/ alþjóðanefndar.

-      að eiga samskipti við sveitastjórnir.

-      að hafa sem nánast samband við skóla, félög og félagasamtök er hafa íþrótta- og tómstundamál á stefnuskrá sinni og vera ráðgefandi í þeim málum.