Sérsamband er samband héraðssambanda/íþróttabandalaga í
hlutaðeigandi íþróttagrein, samanber gr. 53.2. í lögum ÍSÍ.
Hafi aðeins eitt félag innan héraðssambandsins iðkun íþróttagreinar
sérsambandsins á stefnuskrá sinni, getur það félag verið aðili að
sérsambandinu, ef héraðssambandið samþykkir. Ef fleiri en eitt
félag innan héraðssambands hafa iðkun íþróttagreinar sérsambands á
stefnuskrá sinni, hefur viðkomandi sérsamband heimild til að hafa
bein boðskipti við þau ef hlutaðeigandi héraðssamband
samþykkir.
Sérsamband er æðsti aðili innan ÍSÍ um sérfræðileg málefni
íþróttagreinar sinnar. Hlutverk sérsambanda er í
meginatriðum:
a. Að vinna að stofnun nýrra sérráða og efla á annan hátt
viðkomandi sérgrein í landinu.
b. Að setja nauðsynlegar reglur, löggilda dómara, ráðstafa
landsmótum og staðfesta met.
c. Að vera fulltrúi íþróttagreinar sinnar gagnvart útlöndum og sjá
um að reglur varðandi greinina séu í samræmi við
alþjóðareglur.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ er skylt að hafa forgöngu um stofnun
sérsambands, ef a.m.k. 5 héraðssambönd/íþróttabandalög eða sérráð,
þar sem viðkomandi íþróttagrein er stunduð, æskja þess.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ er heimilt að hafa forgöngu um að leggja niður
sérsamband ef íþróttagreinin er ekki stunduð amk innan þriggja
héraðssambanda/íþróttabandalaga.
Sérsambönd ÍSÍ eru í dag 27 talsins.