Ólympíuhreyfingin
    
Á döfinni
12.2.2010
- 28.2.2010
Vetrar Ólympíuleikar
Vancouver 2010
12.3.2010
- 21.3.2010
Vetrar Ólympíumót fatlaðra
Vancouver 2010
11.4.2010
00:01
GLÍ 45 ára.
Fundað í Vancouver
Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver nálgast hratt en þeir verða haldnir 12.-28. febrúar nk. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afrekssviðs ÍSÍ eru nýkomin frá Vancouver en þau funduðu þar með undirbúningsnefnd leikanna og sérskipuðum tengiliðum leikanna við ÍSÍ. Að auki hittu þau Heather Öldu Ireland ræðismann Íslands í Vancouver og Kristjönu Helgason formann Íslendingafélagsins á staðnum. Töluvert af Íslendingum eru búsettir í Vancouver og næsta nágrenni. Aðstaðan er öll að taka á sig mynd og öll mannvirki eru klár. Mikill kuldi og nægur snjór var í Whistler þegar Líney og Andri fóru þar um en þar mun keppni í alpagreinum fara fram. Slóðin á heimasíðu leikanna er www.vancouver2010.com en þar er að finna ýmsan fróðleik um leikana, mannvirkin og keppnisgreinar. Á myndinni má sjá Heather Öldu Ireland, ræðismann Íslands í Vancouver, ásamt Líney Rut Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra ÍSÍ.
Fréttir ÍSÍ
Golfklúbburinn Leynir fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Aðalfundur EOC
Afhending Laurel heiðursverðlauna EOC
Átaks- og hvatningarverkefni ÍSÍ
Góður hádegisfundur ÍSÍ
Greinar
Lissabon sáttmálinn
Lárviðarsveigur Evrópsku Ólympíunefndanna
Evrópumót fatlaðra í sundi