Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Hádegisfyrirlestur: Vegabréf íþróttamannsins

18.09.2018 08:49

Í hádeginu í dag, þriðjudaginn 18. september, mun Lasse Bækken frá Lyfjaeftirliti Noregs (Anti-Doping Norway) halda fyrirlestur undir yfirskriftinni „Vegabréf íþróttamannsins“. Fyrirlesturinn fer fram í húsakynnum ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík (E-sal – 3. hæð) og hefst kl 12:00.

Tilgangur „vegabréfs íþróttamannsins“, e. Athlete Biological Passport (ABP), er að fylgjast með ákveðnum líffræðilegum breytum hjá íþróttafólki sem gætu bent til eða staðfest lyfjamisferli, án þess að það komi fram við hefðbundna greiningu sýna. Þannig getur ABP hjálpað til við að upp kemst um lyfjamisferli þó að niðurstaða lyfjaprófs sé neikvæð. Lyfjaeftirlit um allan heim notast við ABP til þess að betur tímasetja lyfjapróf og „target testa“ íþróttafólk. Þessi kynning verður á mannamáli og er sniðin að þeim aðilum sem hafa á einhvern hátt, beint eða óbeint, með lyfjamál og/eða fræðslumál að gera hjá sérsamböndum/nefndum innan ÍSÍ sem og íþróttafólki. Að sjálfsögðu eru auk þess allir velkomnir sem hafa áhuga á.

Lyfaeftirlit Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetja sambandsaðila ÍSÍ til þess að mæta á þennan fyrirlestur og kynnast nánar lyfjaeftirliti og framkvæmd þess. 
Til baka