Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

06.04.2017

Meistaradagar á RÚV

Meistaradagar á RÚVÍSÍ vekur athygli á Meistaradögum, sem hefjast á RÚV í dag kl.17:20. Um er að ræða mikla íþróttahátíð með nýju sniði þar sem keppt verður um Íslands- og bikarmeistaratitla í átta íþróttagreinum á þremur dögum. Í dag fer fram Íslandsmót í hópfimleikum. Á morgun, föstudag, fer fram Íslandsmót í sundi. Á laugardag verða bikarúrslit liða í keilu, meistarar meistaranna í pílu, Íslandsmót í áhaldafimleikum og Íslandsmót í kraftlyftingum.
Nánar ...
06.04.2017

International Day of Sport for Development and Peace

International Day of Sport for Development and PeaceÍ dag er Alþjóðlegur dagur þróunar og friðar í íþróttum eða International Day of Sport for Development and Peace. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur um heim allan 6. apríl ár hvert síðan 2014. Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2013 var ákveðið að tilnefna 6. apríl í þetta hlutverk, en valið á deginum tengist fyrstu nútíma Ólympíuleikunum sem haldnir voru árið 1896.
Nánar ...
04.04.2017

Forseti ÍSÍ í heimsókn hjá UMSK

Forseti ÍSÍ í heimsókn hjá UMSKLárus L. Blöndal forseti ÍSÍ ásamt föruneyti heimsótti starfssvæði Ungmennasambands Kjalarnesþings - UMSK, 29. mars síðastliðinn. Fundað var með fulltrúum stjórnar UMSK, fulltrúum íþrótta- og ungmennafélaga innan UMSK og íþróttafulltrúum sveitarfélaganna á starfssvæði UMSK. Fundurinn fór fram í stórglæsilegri íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK kynnti starfsemi UMSK og íþróttafulltrúarnir Sigurður Guðmundsson, Mosfellsbæ, Jón Júlíusson, Kópavogi, Haukur Geirmundsson, Seltjarnarnesi og Kári Jónsson, Garðabæ kynntu uppbyggingu íþróttamannvirkja og framtíðarsýn í sveitarfélögunum. Mikil og blómleg starfsemi er í félögum innan vébanda UMSK en þar er m.a. að finna nokkur af stærstu fjölgreinafélögum landsins. Sveitarfélögin á svæði UMSK eiga hrós skilið fyrir glæsilega uppbyggingu íþróttamannvirkja og góðan stuðning við íþróttastarf. Forseti ÍSÍ ávarpaði fundinn og afhenti formanni UMSK bækur og borðfána ÍSÍ að gjöf. Að lokinni dagskrá var íþróttamiðstöðin skoðuð.
Nánar ...
03.04.2017

Benedikt Jóhannsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍ

Benedikt Jóhannsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍÁrsþing Ungmennasambands Austurlands var haldið í Grunnskólanum á Reyðarfirði 2. apríl síðastliðinn í umsjón Umf. Vals. Til þingsins mættu um 60 þingfulltrúar frá 24 félögum auk gesta. Gunnar Gunnarsson var endurkjörinn formaður en auk hans eru Jósef Auðunn Friðriksson, Auður Vala Gunnarsdóttir, Pálína Margeirsdóttir og Benedikt Jónsson í stjórn sambandsins.
Nánar ...
03.04.2017

Breytingar á Ól í Tókýó 2020

Breytingar á Ól í Tókýó 2020Næstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar, sem fram fór í Ríó 2016, tók nefndin ákvörðun um að bæta við fimm íþróttagreinum sem keppt verður í í Tókýó. Það eru hafnabolti og mjúkbolti, karate, hjólabretti, íþróttaklifur (sports climbing) og brimbrettabrun.
Nánar ...