Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

23.03.2017

Heimsráðstefna WADA

Heimsráðstefna WADA Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunin hélt sína árlegu heimsráðstefnu í Lausanne dagana 13.-15. mars. Meginþema ráðstefnunnar voru rödd íþróttafólksins í lyfjamálum, uppfyllingarskilyrði eftirlits og regluverk um- og hvatning til ábendinga (whistleblowing).
Nánar ...
23.03.2017

Tengill á ráðstefnuna Að stjórna íþróttafélagi - ekkert mál?

Uppselt er á ráðstefnuna Að stjórna íþróttafélagi - ekkert mál? sem fram fer í Öskju á morgun föstudaginn 24. mars í samstarfi ÍSÍ og HÍ. Ráðstefnan verður tekin upp en einnig mun verða sýnt beint frá henni og er tengillinn https://rec.hi.is/Panopto/Pages/Viewer.aspx?id=4c7bec59-a86a-447e-b87c-a3274f0e2e94
Nánar ...
22.03.2017

97 milljónum úthlutað úr Ferðasjóði íþróttafélaga

Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2016. Til úthlutunar að þessu sinni voru 97 milljónir króna. Styrkirnir voru greiddir beint til félaga og deilda 3. mars sl. en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni pr. íþróttahérað.
Nánar ...
22.03.2017

Vinnufundur um afreksíþróttir

Vinnufundur um afreksíþróttirLaugardaginn 18. mars sl. stóð Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ fyrir vinnufundi með fulltrúum sambandsaðila ÍSÍ. Um 40 manns frá sérsamböndum og íþróttahéruðum mættu á fundinn og ræddu skilgreiningar á afreksíþróttum, afrekum og árangri og þá sérstaklega þær hugmyndir sem vinnuhópur um endurskoðun á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ skilaði af sér nýverið.
Nánar ...
21.03.2017

Heiðranir á ársþingi USÚ

Heiðranir á ársþingi USÚÁrsþing Ungmennasambandsins Úlfljóts fór fram í gistiheimilinu Hoffelli 16. mars. Þingið var ágætlega sótt, 29 fulltrúar af 41 mættu frá flestum félögum. Stjórn USÚ var endurkjörin en hana skipa: Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður, Kristján Örn Ebenezarson, ritari og Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri.
Nánar ...
21.03.2017

Myndbönd Sýnum karakter

Myndbönd Sýnum karakterSýnum karakter, sem er verkefni á vegum ÍSÍ og UMFÍ, hefur ráðist í myndbandagerð til þess að auglýsa vefsíðuna Sýnumkarakter.is.
Nánar ...
17.03.2017

Vel heppnuð ráðstefna

Vel heppnuð ráðstefnaForseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setti ráðstefnuna Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa í gærdag og fór hún fram við fjölmenni í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Um 250 ráðstefnugestir fylltu öll sæti í salnum og hlýddu á fjölda fræðandi fyrirlestra um heilsueflingu aldraðra ásamt hressandi hléæfingum milli efnishluta og góðri næringu í boði Björnsbakarí og Mjólkursamsölunnar.
Nánar ...
16.03.2017

Ársþing USVH

Ársþing USVHUngmennasamband Vestur-Húnvetninga hélt 76. ársþing sitt í félagsheimilinu Víðihlíð miðvikudaginn 15. mars síðastliðinn. Alls voru 28 þingfulltrúar mættir á þingið sem er um 77% mæting. Þingforseti var Júlíus Guðni Antonsson og stýrði hann þinginu af röggsemi.
Nánar ...
16.03.2017

Ráðstefna um heilsueflingu eldri aldurshópa í dag

Ráðstefna um heilsueflingu eldri aldurshópa í dagÍ dag, fimmtudaginn 16. mars, stendur ÍSÍ í samstarfi við Öldrunarráð Íslands, Landssamband eldri borgara, Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra fyrir ráðstefnu um málefni eldri aldurshópa í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa.
Nánar ...
15.03.2017

Ársþing UMSS

Ársþing UMSSUngmennasamband Skagafjarðar hélt 97. ársþing sitt í Ljósheimum í Skagafirði í gær, þann 14. mars. Ágætis mæting var á þingið og voru alls 36 þingfulltrúar mættir. 11 tillögur lágu fyrir þinginu sem allar voru samþykktar auk einnar til viðbótar sem til varð í störfum nefnda. Þingforsetinn Steinunn Rósa Guðmundsdóttir stýrði þinginu af röggsemi. Þórhildur Sylvía Magnúsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu og var Arnrún Halla Arnórsdóttir kjörin formaður í hennar stað.
Nánar ...
15.03.2017

Árni Björn sæmdur Silfurmerki ÍSÍ

Árni Björn sæmdur Silfurmerki ÍSÍÁrsþing Lyftingasambands Íslands var haldið laugardaginn 11.mars í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ásgeir Bjarnason var endurkjörinn formaður sambandsins. Árni Björn Kristjánsson fráfarandi varaformaður LSÍ var sæmdur Silfurmerki ÍSÍ á ársþinginu fyrir góð störf í þágu ólympískra lyftinga.
Nánar ...