Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Fjarnámskeið um lyfjaeftirlit
Fræðsla er lykillinn að öflugum forvörnum í lyfjamálum. Alþjóðalyfjaprófunarstofnunin (ITA) býður nú öllum þeim sem áhuga hafa á að fylgjast með fjarnámskeiðum sem snúa að lyfjamálum. Námskeiðunum er ætlað að veita íþróttafólki og þjálfurum þeirra yfirsýn yfir allt það sem viðkemur lyfjaeftirliti.
73. ársþing HSS
Héraðssamband Strandamanna (HSS) hélt sitt 73. ársþing þann 10. júní sl. í Félagsheimilinu á Hólmavík. Í aðalstjórn eru: Formaður Hrafnhildur Skúladóttir, varaformaður Jóhann Björn Arngrímsson, gjaldkeri Ragnar Bragason, ritari Finnur Ólafsson og meðstjórnandi Óskar Torfason. Varamenn eru: Júlíus Jónsson, Bjarnheiður Júlía Fossdal, Henrike Sthueff og Halldór Logi Friðgeirsson.
Ársþing UÍF
Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) var haldið þann 4. júní sl. í Tjarnarborg í Ólafsfirði. Á dagskrá voru hefðbundin þingstörf.Gullmerki ÍSÍ veitt á ársþingi BLÍ
Ársþing Blaksambands Íslands (BLÍ) var haldið á laugardaginn sl. Þingið var að venju starfsamt og margar tillögur sem lágu fyrir þinginu. Rúmlega 21 þingfulltrúi sótti þingið.
Athletes 365 kynning í dag
Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ
Sumarfjarnám 1. 2. og 3. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 22. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.Fjöldamörk á samkomum úr 200 í 500 manns
Þann 15. júní næstkomandi tekur gildi auglýsing heilbrigðisráðherra um frekari tilslökun á samkomubanni vegna COVID-19. Meginbreytingin felst í því að fjöldamörk á samkomum hækka úr 200 í 500 manns.
Góð þátttaka í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í dag
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í dag, í 31. sinn. Frábært hlaupaveður var víðast hvar um landið og þátttakendur geisluðu af orku og krafti. Góð þátttaka var í hlaupinu í dag en gera má ráð fyrir að um 8.000 konur hafi tekið þátt á hátt í 70 stöðum um allt land. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í dag
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið um land allt í dag, þann 13. júní 2020.
Nemendum sem stunda íþróttir líður betur
Um 90% barna í hverjum árgangi fer í gegnum íþróttastarf með íþróttafélagi á einhverjum tímapunkti. „Þetta er ótrúlega hátt hlutfall. Ef ég væri forstjóri í fyrirtæki, þá væri ég stolt af þessum tölum,“ segir Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu (R&g) og í íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Margrét kynnti niðurstöður Ánægjuvogarinnar 2020 á kynningarfundi sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir í morgun.
Sértækar aðgerðir - Frestur framlengdur til 19. júní
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) kallar eftir umsóknum frá íþrótta- og ungmennafélögum, íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ sem hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna Covid-19. Er þar meðal annars verið að horfa til sérstakra viðburða, móta og keppnishalds sem ekki gat orðið vegna Covid-19. Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsóknum vegna sértækra aðgerða til og með föstudagsins 19. júní n.k.
Kynning á Ánægjuvoginni í dag
Í dag kl.10 fer fram kynning á Ánægjuvoginni 2020 í fundarsal í Laugardalshöllinni. Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Íþróttafræðideild HR og Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður. Kynningunni verður streymt beint á facebook síðum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ).