Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Íþróttaviku Evrópu lýkur í dag
Íþróttaviku Evrópu hefur staðið yfir í eina viku og lýkur í dag. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Forvarnardagurinn 2019 - Kynningarfundur
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Ráðstefna - Sýnum karakter
Ert þú að vinna innan íþróttahreyfingarinnar eða ungmennafélagshreyfingarinnar ? Þá er næsta ráðstefna Sýnum karakter eitthvað sem þú gætir haft áhuga á. Laugardaginn 5. október fer fjórða Sýnum karakter ráðstefna ÍSÍ og UMFÍ fram. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Dagskrá er fjölbreytt og áhugaverð. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Fræðslufyrirlestrar á Akureyri
Fræðslufyrirlestrar um jákvæð samskipti voru haldnir í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Um var að ræða þrjá fyrirlestra, fyrir iðkendur íþrótta, fyrir foreldra og fyrir þjálfara. Það var Pálmar Ragnarsson sem var með fyrirlestrana við mjög góðar undirtektir þeirra sem þá sóttu. Pálmar hefur getið sér gott orð fyrir frammistöðu sína í þessum fræðum, notkun jákvæðra samskipta við íþróttaþjálfun. Mjög góð þátttaka var á fyrirlestrunum, samtals voru um 340 manns sem mættu og þar af 220 iðkendur íþrótta. Fræðslufyrirlestrarnir eru samstarf ÍSÍ, ÍBA, Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri og var aðgangur ókeypis.Stjórnendanámskeið á Þórshöfn
ÍSÍ í samstarfi við Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) hélt námskeið um stjórnun á Þórshöfn miðvikudaginn 25. september síðastliðinn. Námskeiðið var jafnt fyrir stjórnendur félaga, fólk í ráðum og nefndum og þjálfara. Farið var yfir ýmsar upplýsingar sem máli skipta við fyrrgreind störf og það er von ÍSÍ og HSÞ að þeir sem sóttu námskeiðið séu einhvers vísari og þar með öruggari í starfi. Seinna námskeiðið innan HSÞ verður á Húsavík í október. Fyrirlesari á námskeiðinu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Íþróttavika Evrópu - Hjartadagshlaupið
Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 28. september nk. en hlaupið er frá Kópavogsvelli kl.10:00. Tími verður mældur í 5 km og 10 km hlaupi. Ókeypis er að taka þátt í hlaupinu.
Göngum í skólann - Sögur frá skólum
Göngum í skólann verkefnið er í fullum gangi þessa dagana og stendur til 2. október nk. Þónokkrar frásagnir hafa verið sendar inn frá skólum sem tekið hafa þátt í Göngum í skólann.
Íþróttavika Evrópu - Fullorðinsfimleikar síðasta æfing
Síðasta opna æfingin í fullorðinsfimleikum hjá Ármanni verður í kvöld frá kl.19:30 - 21:00 í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Herferð gegn lyfjamisnotkun
Lyfjaeftirliti Íslands og Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnuninni (WADA) er umhugað um að keppni íþróttafólks sé á jafnréttisgrunni og enginn hafi hag af misnotkun árangursbætandi efna. Ljóst er að baráttan gegn lyfjamisnotkun er ekki verkefni einstakra hópa eða samtaka, ef árangur á að nást þarf samvinnu og samstarf margra einstaklinga og hópa víðs vegar að.
Íþróttavika Evrópu - Skautahöllin
Frá 23. - 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Íþróttafyrirlestrar á Akureyri
Þann 26. september nk. fara fram þrír fyrirlestrar í Háskólanum á Akureyri um jákvæð samskipti í íþróttum. Pálmar Ragnarsson, fyrirlesari og körfuboltaþjálfari, hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti sem hann hefur flutt víðsvegar um landið. Pálmar fjallar á skemmtilegan hátt um samskipti í íþróttum, hvernig við getum verið góðir liðsfélagar og leiðtogar og náð því besta úr öllum í liðinu. Pálmar er með BS gráðu í sálfræði og hefur starfað sem körfuboltaþjálfari í 13 ár.