Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Kvennahlaup sem skiptir máli, fyrr og nú
Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja konur á öllum aldri til aukinnar heilsueflingar og til frekari þátttöku í starfi íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Það hefur sannarlega mælst vel fyrir og því til stuðnings segir það sitt að Kvennahlaupið hefur lengi verið stærsti einstaki íþróttaviðburðurinn á Íslandi. Þátttaka í hlaupinu hefur aukist jafnt og þétt og ár hvert hlaupa þúsundir kvenna um allt land og njóta þess að hreyfa sig saman. Dætur, mæður, frænkur, systur og vinkonur taka þátt og þar eru börn, ungmenni og karlar einnig velkomin.
Aldrei fleiri konur í stjórn ÍSÍ
Á Íþróttaþingi ÍSÍ 2019 var kosið til framkvæmdastjórnar ÍSÍ og hefur hlutfall kvenna í framkvæmdastjórn ÍSÍ aldrei verið hærra, en í stjórninni eru nú 7 konur og 9 karlar. Hlutfall kvenna er því tæp 44%. Í aðalstjórnum innan sambandsaðila ÍSÍ, ef staðan er tekin í dag, er hlutfall kvenna mest í íþróttahéruðum, 39%, næst í íþróttafélögum, 34% og í sérsamböndum 31%.
Samstaða og kraftur kvenna
Árið 1990 var fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ haldið á átta stöðum á landinu, í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ. Lovísa Einarsdóttir, sem sæti átti í framkvæmdastjórn ÍSÍ á þeim tíma, var í lykilhlutverki við stofnun hlaupsins og síðar framkvæmd þess til margra ára. Lovísa var mikil kjarnakona og það var hennar hugsjón að fá fleiri konur til að iðka íþróttir og almenna hreyfingu, sér til heilsubótar. Hún hreif með sér aðra drífandi einstaklinga og ævintýrið hófst. Síðar var sett á laggirnar Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ sem hefur leitt undirbúning og skipulag hlaupsins af hálfu ÍSÍ með miklum sóma.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á laugardaginn
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn laugardaginn 15. júní og er hlaupið langstærsti almenningsíþróttaviðburðurinn á Íslandi á hverju ári. Konur á öllum aldri koma saman á hlaupadegi og eiga skemmtilega stund þar sem sumar hlaupa en aðrar ganga. Í 30 ár hafa þúsundir kvenna um allt land notið þess að hreyfa sig saman í Kvennahlaupinu og í því hafa konur getað sameinað tvo mikilvæga þætti í lífinu, hreyfingu og samveru. Hlaupið er á meira en 80 stöðum um allt land sem og erlendis. Kvennahlaupið hefur meðal annars verið haldið í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Þýskalandi, Belgíu, Sviss, Lúxemborg, Mallorca, víða í Bandaríkjunum, Mósambík og Namibíu. Hvar sem konur eru niðurkomnar þá eru þær partur af einhverju stærra þegar þær taka þátt í Kvennahlaupinu.
Fyrirmyndarhéruð ÍSÍ og Fyrirmyndarfélög ÍSÍ
Yfirlýsing
.jpg?proc=NewsListImage)
Forsýning á heimildarmynd um Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
Áherslan á samstöðu kvenna
Viltu verða þjálfari?
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.
Hrafnhildur og Matthías flogin út til Ólympíu
Ár hvert er tveimur einstaklingum boðið að taka þátt í námskeiði í Ólympíu á vegum Ólympíuakademíunnar. Auglýst var eftir umsóknum og urðu tveir fyrir valinu, einn af hvoru kyni. Í þetta sinn voru þau Hrafnhildur Lúthersdóttir úr sundi og Matthías Heiðarsson úr frjálsum valin til fararinnar. Skíðaþing SKÍ - Nýr formaður
Skíðaþing Skíðasambands Íslands (SKÍ) fór fram í Ólafsfirði þann 25. maí sl. Þingið hófst með þingsetningu og í kjölfarið var skýrsla stjórnar og ársreikningar síðustu tveggja ára kynntir, þingskjöl voru kynnt og útdeilt til nefnda. Nefndarstörf fóru fram og voru þingskjöl síðan tekin til atkvæðagreiðslu sem og að kosningar fóru fram. Þrír stjórnarnmenn gengu úr stjórn, þeir Einar Þór Bjarnason (formaður), Ögmundur Knútsson (varaformaður) og Kristján Hauksson (ritari). Allir hafa þeir starfað innan sambandsins í stjórn og nefndum í mörg ár. Bjarni Theódór Bjarnason er nýr formaður SKÍ en hann var sjálfkjörinn þar sem engin önnur framboð bárust. Engin kosning var í fagnefndir þar sem ný lög voru samþykkt á þinginu sem kveða á um að stjórn tilnefni í nefndirnar.