Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Vinnustofan vettvangur fyrir nýjar hugmyndir
Þann 3. og 4. október sl. fór fram vinnustofa ætluð þeim sem sjá um fræðslu-og/eða mótamál í íþróttahreyfingunni. Vinnustofan var haldin í tengslum við verkefnið Sýnum karakter, sem er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands. Yfirskrift vinnustofunnar var „Keppni með tilgang“ og snérist um keppni hjá börnum og ungmennum. Kanadamaðurinn André Lachance frá Sport for Life hafði umsjón með stofunni. Lachance er prófessor við Háskólann í Ottawa og heldur fyrirlestra og vinnustofur á alþjóðlegum vettvangi, t.d. hefur hann haldið vinnustofur fyrir Íþróttasamband Svíþjóðar (RF) og Danmerkur (DIF) á síðastliðnu ári.
Sýnum karakter ráðstefna í dag
Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík og stendur hún frá kl. 09:30 – 12:30. Verð er 2.500kr. Skráning og greiðsla fer fram hér. Vert er að geta þess að uppselt hefur verið á allar fyrri ráðstefnur Sýnum karakter til þessa.
Íþróttir eru sigurför fyrir sjálfsmyndina
„Íþróttaiðkun sonar okkar hefur ekki bara haft jákvæð áhrif á hann sjálfan heldur á alla fjölskylduna. Hann er líka hamingjusamari. Hann kynntist samherjum sínum í lífinu og þjálfurum sem eru orðnir þátttakendur í lífi hans og okkar,“ segir fjölmiðlakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Sonur Jóhönnu er Hjalti Geir Guðmundsson, sundmaður úr íþróttafélaginu Öspinni og einn fjögurra íslenskra sundkappa sem valdir voru til að keppa fyrir hönd Íslands á heimsleikum Special Olympics í Abú Dabí í mars á þessu ári. Jóhanna Vigdís verður með erindi á ráðstefnu Sýnum karakter á laugardag. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Jóhanna Vigdís mun þar fjalla um íþróttir og keppni sem sigurför fyrir sjálfsmyndina. En hvað á hún við með því?
Forvarnardagurinn 2019
Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?
Laugardaginn 5. október nk. fer fjórða Sýnum karakter ráðstefna Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) fram. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Dagskrá er fjölbreytt og áhugaverð. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Vinnustofan Keppni með tilgang
Dagana 3. og 4. október á 2. hæð í nýju Laugardalshöllinni fer fram vinnustofa ætluð þeim sem sjá um fræðslu-og/eða mótamál í íþróttahreyfingunni. Yfirskrift vinnustofunnar er Meaningful Competition sem í lauslegri þýðingu gæti verið „Keppni með tilgang“ og lítur að keppni hjá börnum og ungmennum.
100 dagar til Ólympíuleika ungmenna í Lausanne
Í dag eru 100 dagar þar til þriðju Vetrarólympíuleikar ungmenna (YOWG) verða settir í Lausanne í Sviss. Leikarnir standa yfir frá 9. - 22. janúar 2020.