Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Fræðslufundur UMSS 2019
Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) stóð fyrir viðburðinum Fræðslufundur UMSS 2019 í Miðgarði í Skagafirði miðvikudaginn 30. október síðastliðinn. Þessi árlegi viðburður er liður í stefnu UMSS í fræðslumálum. Ágætis mæting var frá fulltrúum aðildarfélaga UMSS enda voru fræðslufyrirlestrar fjölbreyttir og góð umræða um samvinnu í þessum efnum að fyrirlestrum loknum. Baldur Þór Ragnarsson körfuknattleiksþjálfari var með fyrirlestur um liðsmenningu mfl. Tindastóls í körfuknattleik karla, Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri var með kynningu á styttri útgáfum af stjórnendanámskeiðum ÍSÍ og Sölvi Tryggvason var með athyglisverðan fyrirlestur sem hann kallaði „Sigrum streituna“. Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sá um fundarstjórn.
Bannlisti WADA 2020 - Helstu breytingar
Bannlisti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List) er endurskoðaður á hverju ári. Ný útgáfa tekur gildi 1. janúar 2020 og fyrir neðan má sjá helstu breytingar á milli ára.Þrjár frjálsíþróttakonur á leið á HM
Heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsíþróttum fer fram í Dubai dagana 7.- 15. nóvember nk. Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) teflir fram þremur keppendum á mótinu og að þessu sinni eru það þrjár öflugar frjálsíþróttakonur sem munu reyna fyrir sér á stóra sviðinu.
Íþróttafræðinám við Háskólann í Reykjavík hefst í Vestmannaeyjum
Það er ánægjuleg frétt fyrir íþróttahreyfinguna að frá haustönn 2020 verði hægt að nema íþróttafræði á háskólastigi í Vestmannaeyjum. Í dag undirrituðu Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, samning þess efnis, en námið er fjarnám úr Háskólanum í Reykjavík sem kennt verður í Vestmannaeyjum. Náminu er ætlað að nýtast sem grunnur að áframhaldandi námi í íþróttafræði.
Aðalfundur EOC 2019
Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC) hélt aðalfund sinn um helgina í Varsjá í Póllandi. Fundurinn var hinn glæsilegasti en Ólympíunefnd Póllands hélt upp á 100 ára afmæli sitt við sama tækifæri með glæsilegri dagskrá.
Fundur með fulltrúum Akureyrarbæjar, ÍBA og VMÍ
Framkvæmdastjórn ÍSÍ fundaði í vikunni með fulltrúum Akureyrarbæjar, Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands (VMÍ). Fundað var í fundaraðstöðu í Íþróttahöllinni við Skólastíg á Akureyri. Tveir áratugir á Akureyri
Þann 1. september síðastliðinn voru 20 ár síðan skrifstofa ÍSÍ á Akureyri var sett á laggirnar. Skrifstofan var lengi vel við Glerárgötuna en flutti svo í nýtt og rúmbetra húsnæði á síðasta ári í Íþróttahöllinni við Skólastíg. Íþróttir barna og unglinga
Íþróttir eru vinsælasta tómstundaiðkun barna á Íslandi en um 12 ára aldur stunda rúmlega átta af hverjum tíu börnum íþróttir með íþróttafélagi. Margar ólíkar íþróttagreinar eru í boði og ættu öll börn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á Íþróttaþingi árið 1996 var samþykkt stefna í íþróttum barna og unglinga og frá þeim tíma hafa orðið töluverðar breytingar í íþróttaumhverfi barna. Síðan þá hafa sérsamböndin aðlagað og einfaldað keppnisfyrirkomulag í íþróttum barna, fækkað leikmönnum í liðum, minnkað mörk og dregið verulega úr mikilvægi úrslita með því að tilkynna síður úrslit í yngstu aldurshópunum. Samhliða þessum breytingum hefur þátttaka aukist verulega, fjölbreytni er meiri og börn byrja fyrr að stunda íþróttir með íþróttafélögum en áður. Þá er þátttaka foreldra í íþróttum barna mun meiri og væri íþróttastarfið í þeirri mynd sem það er í dag nær ómögulegt án aðkomu þeirra. Menntun þjálfara hefur aukist og aðstaða til íþróttaiðkunar stórbatnað.
Vertu með! Sport For All!
Merki Ólympíuleikanna í París 2024
Í gær birti skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í París í Frakklandi merki Ólympíuleikanna 2024 og Ólympíumóts fatlaðra 2024. Athöfnin fór fram í París, en um 700 hlauparar hlupu mismunandi leiðir í kringum miðpunkt Parísar og mynduðu útlínur nýja merkisins. Merkið var síðan sýnt í heild sinni á risastórum skjá í kvikmyndahúsinu Grand Rex Cinema í París kl.20.24. Í fyrsta skipti í sögunni er sama merki notað fyrir Ólympíuleika og Ólympíumót fatlaðra. Merkið sameinar þrjú þekkt tákn sem tengjast íþróttum, Ólympíuleikunum og Frakklandi, þ.e. gullverðlaunapening, ólympíueldinn og Marianne. Marianne er holdgervingur gilda franska lýðveldisins sem talin eru í kjörorðum landsins; „Frelsi, jafnrétti, bræðralag“. Hún er mikilvægt tákn lýðveldishyggju, frjálslyndis og lýðræðis í Frakklandi. Myndir af Marianne hafa birst á ýmsum opinberum skjölum, frímerkjum og myntum í Frakklandi og þótti skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í París við hæfi að tengja Marianne við merki leikanna.
Torfi Einarsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Knattspyrnufélagið Hörður fagnar100 ára afmæli félagsins á þessu ári. Stofnfundur félagsins var haldinn 27. maí 1919 í Sundstræti 41 og voru stofnendur tólf ungir Ísfirðingar. Þeir höfðu allir áður starfað í Fótboltafélagi Ísafjarðar, sem stofnað var 1914 var starfandi í tíu ár.Lárus og Líney á ársþingi Heimssambands Ólympíunefnda
Ársþing Heimssambands Ólympíunefnda (ANOC) fer fram í Doha í Katar í gær og í dag. Fyrir utan hefðbundna dagskrárliði verða fluttar stöðuskýrslur vegna ólympískra verkefna sem eru nýafstaðin og þeirra sem framundan eru. Ber þar hæst Vetrarólympíuleika ungmenna í Lausanne og Sumarólympíuleikana í Tókýó á næsta ári.