Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

08.11.2018

Dagur gegn einelti

Dagur gegn eineltiDagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Í ár verður dagurinn haldinn í áttunda sinn.
Nánar ...
05.11.2018

Nikolay skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambandsins

Nikolay skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambandsinsNikolay Ivanov Mateev, formaður Skylmingasambands Íslands, var skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambandsins á dögunum. Nikolay hefur verið potturinn og pannan í skylmingaíþróttinni hér á landi um langt árabil. Hann var lengi framkvæmdastjóri Skylmingasambandsins og var kjörinn formaður sambandsins árið 2016.
Nánar ...
05.11.2018

Líney Rut leiðir vinnuhóp um Ólympíuakademíur

Líney Rut leiðir vinnuhóp um ÓlympíuakademíurÞann 26. október sl. fór fram fundur vinnuhóps um Ólympíuakademíur í höfuðstöðvum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) í Róm. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ sem situr í framkvæmdastjórn EOC leiðir vinnuhópinn ásamt formanni hópsins, Gudrun Doll-Tepper frá Þýskalandi. Vinnuhópurinn var stofnaður fyrr á þessu ári og er honum fyrst og fremst ætlað að leiðbeina EOC um menntamál og menningarstarfsemi. Á fundinum gaf formaður hópsins skýrslu um stofnun Evrópusambands Ólympíuakademía (EOA) sem fór fram þann 20. september sl. í Ljubljana í Slóveníu. Rætt var um vinnuáætlun hópsins og samvinnu við EOC og EOA. Hópurinn ætlar að hittast næst í tengslum við aðalfund Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) í Marbella á Spáni á fundi sem kallast „Umhverfi og íþróttir fyrir alla“. Þar munu allir formenn nefnda EOC og vinnuhópar fara yfir þau störf sem þeir hafa unnið og áætlanir hópanna í framtíðinni.
Nánar ...
02.11.2018

Frábær ráðstefna um jákvæða íþróttamenningu

Frábær ráðstefna um jákvæða íþróttamenninguUppselt var á ráðstefnuna „Jákvæð íþróttamenning“ sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands héldu ráðstefnuna í samvinnu við Háskólann í Reykjavík undir merkjum verkefnisins Sýnum karakter sem ÍSÍ og UMFÍ standa saman að. Áherslan á ráðstefnunni var á félagslegar og sálrænar hliðar íþrótta og rætt var um leiðir til að byggja upp jákvæða menningu í íþróttastarfinu. Ráðstefnugestir komu víða að og var fjöldi gesta frá Neskaupstað, Ísafirði, úr Dölunum, Keflavík og víðar sem gerði sér ferð til að fræðast og ræða saman um það hvernig hægt er að gera gott starf enn betra.
Nánar ...
02.11.2018

Uppselt á íþróttaráðstefnu ÍSÍ og UMFÍ

Uppselt á íþróttaráðstefnu ÍSÍ og UMFÍ„Það er frábært að sjá hvað þjálfarar, fólk í stjórnum íþróttafélaga og íþróttafólk sýnir ráðstefnunni mikinn áhuga. Það sýnir að við erum á réttri leið og fólk vill fræðast um og innleiða jákvæða menningu í íþróttum. Alltaf er hægt að bæta gott starf,“ segir Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.
Nánar ...
01.11.2018

Vinnustofa: Jákvæð íþróttamenning

Vinnustofa: Jákvæð íþróttamenningVinnustofan „Jákvæð íþróttamenning“ fer fram þann 3. – 4. nóvember nk. og mun íþróttasálfræðingurinn Dr. Chris Harwood stýra henni. Miðinn á vinnustofuna kostar 15.000 kr. – innifalið er ráðstefna sem fer fram á morgun, þann 2. nóvember (sjá hér), vinnustofan, bókin Coaching Psycological skills in youth football: Developing The 5Cs og hádegismatur á laugardeginum. Hægt er að nálgast miða hér.
Nánar ...