Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Elmar Atli knattspyrnumaður Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar
Þann 30. desember sl. var Elmar Atli Garðarson knattspyrnumaður frá Vestra útnefndur Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar. Elmar Atli hefur æft og spilað knattspyrnu á Ísafirði frá því í yngri flokkum. Hann var mikilvægur hlekkur í liði Vestra í sumar og spilaði 20 leiki með liðinu í 2. deild þar sem liðið endaði í 3.sæti eftir harða keppni um sæti í Inkasso-deildinni. Elmar Atli spilaði þá þrjá bikarleiki sem Vestri lék á árinu. Hann leggur sig alltaf 100% fram og er frábær liðsmaður innan sem utan vallar. Þá er hann góð fyrirmynd ungra leikmanna og er iðinn við að miðla reynslu sinni til þeirra. Elmar Atli var á haustmánuðum kallaður til reynslu hjá sænska liðinu Helsingsborg þar sem hann æfði í viku.
Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu hefst 6. febrúar
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Á síðasta ári voru yfir 15 þúsund virkir þátttakendur í samtals um 500 skólum og vinnustöðum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er.
Perla Ruth Albertsdóttir íþróttamaður USVH 2018
Íþróttamaður USVH (Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu) árið 2018 var kjörinn Perla Ruth Albertsdóttir handknattleikskona frá Eyjanesi í Hrútafirði, leikmaður Selfoss og íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik. Í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona hjá Þyt og í þriðja sæti Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík. Kjöri íþróttamanns USVH var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga þann 28. desember 2018.
Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar
Nýr bannlisti WADA 2019
Þann 1. janúar sl. tók gildi nýr bannlisti WADA, Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List). Listinn er endurskoðaður á hverju ári og tekur ný útgáfa gildi 1. janúar ár hvert. Bannlisti WADA gildir innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Listann í heild sinni má nálgast með því að smella á hlekk hér fyrir neðan og einnig er samantekt (á ensku) á helstu breytingum og viðbætum frá fyrra ári.
Skrifstofa ÍSÍ er lokuð í dag
.jpg?proc=NewsListImage)
Nýr bannlisti WADA 2019
Í dag tók gildi nýr bannlisti WADA, Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List). Listinn er endurskoðaður á hverju ári og tekur ný útgáfa gildi 1. janúar ár hvert. Bannlisti WADA gildir innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Gleðilegt nýtt ár
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar sambandsaðilum sínum og aðildarfélögum þeirra, sem og landsmönnum öllum gleðilegs árs!
Megi árið 2019 verða ykkur öllum gæfuríkt og farsælt í leik og starfi.