Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Kynningarfundur með ráðherra

30.12.2020

Síðdegis í dag var haldinn kynningarfundur Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra, Unnar Sverrisdóttur forstjóra Vinnumálastofnunar og Lárusar L. Blöndal forseta ÍSÍ með íþróttahreyfingunni um lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs og fyrirkomulag varðandi umsóknarferlið þar að lútandi.  Fundurinn var haldinn í Microsoft Teams fjarfundabúnaðinum. Vel var mætt á fundinn eða um 180 manns þegar mest var.  Á fundinum kom m.a. fram að umsóknarkerfið verði væntanlega tilbúið í lok janúar að lokinni forritunarvinnu og annarri undirbúningsvinnu fyrir verkefnið. Reynt verður að hafa það sem mest í rafrænu formi.

Ýmsar spurningar komu fram á fundinum varðandi úrræðið og útfærslur á umsóknarferlinu og verður svörum og skýringum komið á framfæri við íþróttahreyfinguna þegar lengra verður komið í undirbúningsvinnunni fyrir umsóknarferlið.  Vinnumálastofnun vinnur að málinu og er það forgangsverkefni stofnunarinnar í janúarmánuði. Náið samráð og samstarf verður haft við ÍSÍ í undirbúningi og framkvæmd úrræðisins og þess gætt að sjónarmiðum og athugasemdum íþróttahreyfingarinnar verði komið á framfæri á öllum stigum málsins.

Hér fyrir neðan má finna umrædd lög og einnig efni sem farið var í gegnum á fundinum: 

Lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

Glærur Vinnumálastofnunar sem kynntar voru á fundinum.

Glærur félags- og barnamálaráðherra sem kynntar voru á fundinum.