Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2020

29.05.2020

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2020 fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í hádeginu í dag, 29. maí. Hjólað í vinnuna er því formlega lokið í ár. Fyrr í vikunni lauk skráningum ferða og þar með voru úrslitin ljós. Húsfyllir var við afhendinguna og afhenti Þráinn Hafsteinsson formaður Almenningsíþróttasviðsnefndar ÍSÍ þátttakendum verðlaunaplatta í hverjum flokki fyrir sig. Verðlaun voru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall þátttökudaga. Í kílómetrakeppninni voru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir bæði heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra miðað við fjölda starfsmanna. Alla vinnustaði í verðlaunasæti má finna hér á vefsíðu verkefnisins.

Þetta árið voru þátttakendur alls 6.659 sem er 7% aukning frá því fyrra og það á þessum fordæmalausu tímum er alveg frábært. Vinnustaðir voru alls 507 sem skráðu 1.116 lið til keppni. Skráðir kílómetrar voru 468.143 km sem jafngildir um 344 hringjum í kringum landið.

Hjólað í vinnuna 2020
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stóð í átjánda sinn fyrir verkefninu Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land, dagana 6. – 26. maí. Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Þrátt fyrir sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu núna er svo sannarlega nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Landsmenn hafa tekið verkefninu gríðarlega vel og hefur verið aukning ár frá ári. Einnig má merkja að hjólreiðar allt árið hafa aukist til muna síðan að verkefnið hófst.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Það er nefnilega einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi að nota virkan ferðamáta. Í ár þurftum við að aðlaga verkefnið að þessum breyttu aðstæðum í samfélaginu. Fólk sem vann heima var hvatt til þess að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta þá vegalengd sem samsvaraði vegalengdinni til og frá vinnu.

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is.

Myndir með frétt