Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Hjólað til betri heilsu

27.04.2020

Á vefsíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is, er að finna ýmsan skemmtilegan fróðleik sem kann að nýtast þátttakendum í verkefninu Hjólað í vinnuna, sem hefst þann 6. maí nk. Meðal annars er þar hægt að sjá „Göngu- og hjólastígakort“, en þar er að finna tengingu inn á borgarvefsjá og aðra góða vefi þar sem hægt er að finna góðar hjólaleiðir. Einnig er hægt að lesa sér til um umferðaröryggi hjólreiðafólks, öryggisbúnað og fleira.

ÍSÍ hvetur fólk til að hjóla til betri heilsu og spara sér þannig bæði peningana og kolefnissporin í leiðinni.

Gagnlegir tenglar:

Hvernig skrái ég mig til leiks?

Reglur

Efni til að prenta út

 

Um hjólað í vinnuna
Hjólað í vinnuna hefur verið haldið árlega í maí allt frá árinu 2003 og stendur yfir í þrjár vikur í senn. Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning í þjóðfélaginu um hjólreiðar sem heilsusamlegan samgönguvalkost. Þegar Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 tóku 533 einstaklingar þátt en þátttakan óx ár frá ári og náði hámarki árið 2012 þegar 11.381 einstaklingur tók þátt. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífsstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu.

Samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna eru: Rás 2, Advania, Örninn og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn. 

Nánari upplýsingar má finna á www.hjoladivinnuna.is ásamt síðum á Facebook og Instagram.