Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Margrét og Júlían Íþróttafólk Reykjavíkur 2019

20.12.2019

Í gær var tilkynnt um val á Íþróttafólki Reykjavíkur 2019. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 41. sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í sjöunda sinn kjörin íþróttakarl, íþróttakona og íþróttalið Reykjavíkur en í fyrsta sinn í ár voru tvö lið valin, eitt karlalið og eitt kvennalið.

Íþróttakarl Reykjavíkur 2019 er kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson úr Glímufélaginu Ármanni. Júlían setti heimsmet í réttstöðulyftu og varð í þriðja sæti samanlagt á HM ásamt því að setja Íslandsmet.

Íþróttakona Reykjavíkur 2019 er knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir úr Knattspyrnufélaginu Val. Margrét Lára varð Íslandsmeistari með Val í sumar en hún hefur skorað 255 mörk í 180 leikjum í meistaraflokki ásamt því að leika 124 landsleiki og skora í þeim 79 mörk, fleiri en nokkur önnur íslensk knattspyrnukona.

Íþróttalið Reykjavíkur í kvennaflokki 2019 er lið Vals í körfuknattleik kvenna sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu. Íþróttalið Reykjavíkur í karlaflokki 2019 er lið KR í körfuknattleik karla sem varð Íslandsmeistari á árinu.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, afhentu íþróttafólkinu og forsvarsmönnum íþróttafélaganna verðlaunin.

Tólf einstaklingar og fimmtán lið frá tíu félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2019. Íþróttafólkið og íþróttafélögin sem að liðunum standa fengu bæði áletraða verðlaunagripi og peningastyrk í verðlaun. Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur veittu styrkina.

Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2019:

Ármann – Íslands- og bikarmeistarar í sundknattleik
ÍR – Íslandsmeistarar í keilu
Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í júdó
Keilufélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í keilu
KR – Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla
KR – Íslandsmeistarar í körfuknattleik karla
Skylmingafélag Reykjavíkur – Íslandsmeistarar í skylmingum
TBR - Íslandsmeistarar í liðakeppni í badminton
Valur - Íslandsmeistarar í knattspyrnu kvenna
Valur – Íslands- og bikarmeistarar í handknattleik kvenna
Valur – Íslands- og bikarmeistarar í körfuknattleik kvenna
Víkingur – Bikarmeistarar karla í knattspyrnu
Víkingur - Íslands- og bikarmeistarar í borðtennis
Víkingur – Íslandsmeistarar í tennis
Þórshamar - Íslandsmeistarar karla í kata
Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2019:

Arnar Davíð Jónsson, Keilufélagi Reykjavíkur
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttadeild Ármanns
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsíþróttadeild ÍR
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttadeild ÍR
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur
Helena Sverrisdóttir, körfuknattleiksdeild Vals
Íris Björk Símonardóttir, handknattleiksdeild Vals
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingadeild Ármanns
Kári Árnason, knattspyrnudeild Víkings
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnudeild Vals
Óskar Örn Hauksson, knattspyrnudeild KR
Snorri Einarsson, Skíðagöngufélaginu Ulli