Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað þann 28. desember

19.12.2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands afhendir viðurkenningar til íþróttakvenna og íþróttamanna sérgreina íþrótta þann 28. desember nk. í Silfurbergi í Hörpu. Hófið er haldið með Samtökum íþróttafréttamanna, sem velja síðan Íþróttamann ársins 2019. Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV. Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 64. sinn en þjálfari og lið ársins í áttunda sinn.

Útnefnt verður í Heiðurshöll ÍSÍ. Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum. Heiðurshöll ÍSÍ má sjá á vefsíðu ÍSÍ hér.