Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Fyrirmyndarhéruð ÍSÍ og Fyrirmyndarfélög ÍSÍ

12.06.2019

Mikil vakning er þessi misserin hvað varðar áhuga á viðurkenningum ÍSÍ fyrir fyrirmyndarstarf. Íþróttahéruðin eru hvert á fætur öðru farin að vinna að því að uppfylla skilyrði ÍSÍ hvað þetta varðar. Athyglisvert er að í stefnum og samþykktum sveitarfélaga og íþróttahéraða má í auknum mæli finna ákvæði um þessar viðurkenningar og þar með aukið faglegt starf í málefnum íþrótta. Sem dæmi má nefna að í Íþróttastefnu Akureyrarbæjar og Íþróttabandalags Akureyrar er kveðið á um að ÍBA verði Fyrirmyndarhérað ÍSÍ og öll aðildarfélög ÍBA Fyrirmyndarfélög ÍSÍ. ÍBA er komið á fullt í þessari vinnu og aðildarfélögin líka, þ.e. þau þeirra sem ekki hafa þessa viðurkenningu nú þegar.

Tvö íþróttahéruð eru Fyrirmyndarhéruð ÍSÍ í dag, Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) og Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS). Þriðja héraðið, Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga (USVH) fær viðurkenningu þessa efnis í júlí. Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþróttabandalag Akureyrar, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Héraðssamband Vestfirðinga, Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar, Héraðassamband Þingeyinga og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands eru allt héruð sem eru komin af stað í þessari vinnu en eru mislangt komin. Allar frekari upplýsingar veitir skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, Viðar Sigurjónsson, vidar@isi.is, 514-4000.