Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

100 dagar til Evrópuleika

13.03.2019

Í dag eru 100 dagar þar til Evrópuleikarnir 2019 verða settir. Þeir fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). 

Keppt verður í 15 íþróttagreinum, m.a. í bogfimi, frjálsíþróttum, badminton, 3x3 körfubolta, hjólreiðum, fimleikum, júdó, karate, borðtennis og glímu. Í tíu greinum af þeim 15 sem keppt verður í geta keppendur náð lágmörkum á Ólympíuleikana í Tókýó í Japan árið 2020. Evrópuleikarnir eru taldir mikilvægur hluti af undirbúningi íþróttafólks fyrir Ólympíuleikana í Tókýó. Gert er ráð fyrir að um 4000 keppendum frá 50 löndum taki þátt í Evrópuleikunum og að margir hverjir tryggi sig inn á Ólympíuleikana. Lukkudýr leikanna er refurinn Lesik en honum er ætlað að efla vináttu, stuðla að jafnvægi, aga og ákveðni og bera gleðina með sér hvert sem hann fer.

Hér má sjá áhugaverðar upplýsingar um Evrópuleikana 2019.

Vefsíðu Evrópuleikanna má sjá hér.

Evrópuleikarnir eru einnig á Facebook og Instagram @eoc_media

#EuropeanGames
#Minsk2019
#BrightYearBrightYou
#InspiringSportInEurope

Myndir með frétt