Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Þjálfaramenntun ÍSÍ - Vorfjarnám

11.01.2019

Vorfjarnám 1. og 2. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 11. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði.
Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 8. febrúar. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Slóð á skráningu á bæði stig í vorfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019. 

Umsagnir nemenda um námið eru frábærar !

„Vitundavakning á góðri þjálfun. Hægt að vinna verkefnin á sínum hraða“

„Mjög gott og skýrt námsefni og mikill stuðningur leiðbeinanda“

„Greinargóð og skýr verkefni“

„Gott, skemmtilegt og nýtanlegt í þjálfun“

„Verkefnin voru fjölbreytt, reyndu á mismunandi þætti og létu mann skoða hluti frá mismunandi sjónarhornum“

 

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 og 863-1399 eða á vidar@isi.is