Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Haustfjarnámi í þjálfaramenntun lokið

26.11.2018

Haustannarfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun er nú lokið. Alls 46 nemendur ljúka námi á 1. stigi ÍSÍ, almennum hluta sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Nemendur komu úr mörgum mismunandi íþróttagreinum s.s. fimleikum, frjálsíþróttum, körfuknattleik, handknattleik, júdó, dansíþróttum, sundi, skíðaíþróttum, knattspyrnu, skautaíþróttum, siglingum og blaki. Sérgreinaþátt námsins taka nemendur hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

Næsta fjarnám í þjálfaramenntun verður á vorönn 2019 og hefst um mánaðamótin janúar/febrúar. Allar upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri á vidar@isi.is og í síma 514-4000/460-1467.