Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ábyrgð í félagsstarfi

26.10.2018

Í ritinu Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga er gerð grein fyrir þeim lagaramma sem við á í félags- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni á Íslandi og þeim aðgæslu- og eftirlitsskyldum sem hvíla á þeim sem hafa umsjón með börnum. Í ritinu kemur einnig fram hverjir teljast starfsmenn í félags- og tómstundastarfi og hlutverki foreldra lýst í því sambandi. Einnig er talað um möguleika á tryggingum, frítímaslysatryggingum, sem foreldrar taka fyrir börn sín (hluti af fjölskyldutryggingu), ábyrgðartryggingu þeirra sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi, frítímaslysatryggingu barna sem sveitarfélögin eru með og fjölskyldutryggingu foreldra en í þeim felst ábyrgðartrygging. Ritið er gefið út af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu 2012 og höfundur þess er Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor í HR. Ritið má sjá á issuu-síðu ÍSÍ hér fyrir neðan.

Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga pdf.