Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Íslenska íþróttaundrið

24.10.2018

Dr. Viðar Halldórsson kynnti rannsókn sína á því hvers vegna íslensk A-landslið í hópíþróttum hafa náð jafn langt á alþjóðlegum vettvangi og raun ber vitni á hádegisfundi í Íþróttamiðstöðinni í maí 2017. Viðar gaf einnig út bók um málið sem ber heitið Sport in Iceland. How Small Nations Achieve International Success. Niðurstöður má helst skýra með menningarlegum sérkennum annars vegar og aukinni fagmennsku hins vegar. Íslendingar nálgist íþróttir sem leik og skemmtun og leikmenn líti á liðsfélaga í landsliðinu sem vini sína. Þar að auki hafi á síðustu árum bæst við aukin fagmennska á öllum sviðum íþrótta með tilkomu erlendra þjálfara, bættrar þjálfaramenntunar og með tilkomu internetsins sé auðveldara að verða sér úti um aukna þekkingu. Þarna er komin blanda af leikgleði, stemningu og vinskap en einnig aga og fagmennsku. Fyrir áhugasama má sjá fundinn í heild sinni á Vimeo-síðu ÍSÍ hér