Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi

17.11.2017

18. nóvember er helgaður vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi og styrkti Evrópuráðið af því tilefni gerð 3ja mínútna myndbands á íslensku um málefnið.

Stýrihópur ráðuneyta velferðar, innanríkis og mennta- og menningarmála um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess hafa farið þess á leit við grunnskóla, stofnanir og félagasamtök að vekja athygli á forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi.

Barnaverndarstofa og umboðsmaður barna hvetja til þess að myndin verði sýnd sem víðast. Þannig stuðlum við að aukinni  umræðu og samfélagsvitund um kynferðislegt ofbeldi.
Myndbandið sem greint er frá hér að ofan má finna hér

ÍSÍ gaf út bækling um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi í íþróttum haustið 2013 og er hann að finna hér sem pdf skjal. Á Issuu-síðu ÍSÍ hér má lesa bæklinginn rafrænt.
Tökum höndum saman og helgum 18. nóvember vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi.