Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Sýnum karakter - Myndbönd

14.11.2017

Ráðstefnan Sýnum karakter - Allir með fór fram í október sl. Ráðstefnan var tileinkuð ungu fólki innan íþróttahreyfingarinnar og voru þátttakendur á aldrinum 13-25 ára. 

Ráðstefnan var tekin upp og er nú búið að birta fyrirlestur knattspyrnukonunnar Fjolla Shala og dómarans Vilhjálms A. Þórarinssonar og viðtal við íþróttafólk sem sótti ráðstefnuna.

Vefsíða Sýnum karakter er synumkarakter.is og verkefnið er einnig með facebook-síðu undir nafninu Sýnum karakter.

Sýnum karakter er samstarfsverkefni  Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Um ár er síðan ÍSÍ og UMFÍ ýttu verkefninu úr vör. Sýnum karakter fjallar um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. 

Á meðal þeirra sem fluttu erindi á ráðstefnunni voru Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, Hafrún Kristjánsdóttir, sviðsstjóri í HR, knattspyrnukonan Fjolla Shala, dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir og körfuboltaþjálfarinn Pálmar Ragnarsson. 

Myndir frá ráðstefnunni má sjá á myndasíðu ÍSÍ hér.

Hér fyrir neðan má sjá þau myndbönd sem Sýnum karakter hefur birt en einnig á Youtube-síðu Sýnum karakter