Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Fararstjóranámskeið 10. maí

04.05.2017

ÍSÍ býður upp á námskeið fyrir fararstjóra í íþróttaferðum í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, miðvikudaginn 10. maí. Þátttaka er öllum heimil án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir en námskeiðið mun fara fram á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í E - sal, kl. 17:00-19:00.

Gústaf Adólf Hjaltason verður fyrirlesari á námskeiðinu en hann hefur margra ára reynslu úr íþróttastarfinu og sat meðal annars í framkvæmdarstjórn ÍSÍ.

Farið verður yfir þá fjölmörgu þætti sem hafa þarf í huga varðandi hlutverk fararstjóra í keppnis- og æfingaferðum á vegum íþróttahreyfingarinnar, bæði innanlands og erlendis.

Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og því um að gera að skrá sig í tíma. Allir þátttakendur fá skjal frá ÍSÍ með staðfestingu á þátttöku að námskeiðinu loknu.

 Skráning fer fram hér