Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

73. Íþróttaþing ÍSÍ 5. - 6. maí

04.05.2017

 73. Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík 5. – 6. maí nk. Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Þingsetning verður föstudaginn 5. maí og hefst kl. 15:00.

Fyrir þinginu liggur tillaga um kosningu þriggja nýrra Heiðursfélaga ÍSÍ, sem borin verður upp í upphafi þingsins. Þá liggja fyrir þinginu margar tillögur um ýmis mál er varða málefni íþróttahreyfingarinnar. Öll þinggögn má finna hér á vefsíðu ÍSÍ.

Kosningar til forseta ÍSÍ og framkvæmdastjórnar ÍSÍ fara fram á laugardeginum 6. maí.

Á laugardaginn 6. maí kl. 13:00 verður útnefnt í Heiðurshöll ÍSÍ en nú þegar hafa 15 einstaklingar verið útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ.

Gert er ráð fyrir að Íþróttaþinginu ljúki á laugardagseftirmiðdag.

Fyrirkomulag þingsins má sjá hér.

Ársskýrslu og tölfræðirit má sjá hér þegar að þingið hefst.