Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Lífshlaupið hefst 1. febrúar

06.01.2017

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa.

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Lífshlaupið 2017. Skráðu þig til leiks hér

Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, þ.e. í frítíma, í vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Í ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embættis landlæknis.

Lífshlaupið stendur fyrir:

  • Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar.
  • Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar.
  • Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar.
  • Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín. í senn.

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.