Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Myndir frá hófinu Íþróttamaður ársins 2016

02.01.2017

Á myndasíðu ÍSÍ má nú sjá myndir frá hófinu Íþróttamaður ársins 2016.

ÍSÍ veitti íþróttafólki einstakra íþróttagreina viðurkenningar en allar upplýsingar um þá verðlaunahafa eru aðgengilegar hér á heimasíðu ÍSÍ.

Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður var útnefndur Íþróttamaður ársins 2016 af Samtökum íþróttafréttamanna. Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona var í öðru sæti og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylfingur var í þriðja sæti.

Tveir einstaklingar voru teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ, þeir Guðmundur Gíslason sundkappi og Geir Hallsteinsson handknattleiksmaður.

Samtök íþróttafréttamanna veittu nú í fimmta sinn viðurkenningu til þjálfara ársins og var það Dagur Sigurðsson handknattleiksþjálfari sem hlaut þann heiður. Viðurkenning til liðs ársins fór að þessu sinni til íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.