Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Verðlaunaafhending Lífshlaupsins 2016

26.02.2016Verðlaunaafhending Lífshlaupsins fór fram í sal KSÍ við Laugardalsvöll í hádeginu í dag. Fulltrúar frá vinnustöðum, grunn-, og framhaldsskólum tóku á móti sínum verðlaunum.
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdarstjóri ÍSÍ ávarpaði gesti og afhenti sigurvegurum í öllum flokkum verðlaunaplatta. Þau fyrirtæki og þeir skólar sem höfðu ekki tök á því að vera með okkur fá verðlaunaplattann sendan til sín í næstu viku.
Góð þátttaka var í Lífshlaupinu í ár en um 18.550 þátttakendur voru skráðir til leiks á 414 vinnustöðum, í 31 grunnskólum og 7 framhaldsskólum.
Gaman er að sjá hversu margir vinnustaðir og skólar eru duglegir að taka þátt í verkefninu ár eftir ár. Segja má að Lífshlaupið sé orðið að vinnustaða-/skólamenningu, en vinnustaðir og skólar eru duglegir að skapa sínar hefðir í kringum Lífshlaupið.
Myndir af verðlaunaafhendingunni eru komnar á netið.
Um leið og við óskum sigurvegurum til hamingju með árangurinn, þökkum fyrir frábæra þátttöku og hvetjum alla til að halda áfram að hreyfa sig og nota vefinn til þess að halda utan um sína hreyfingu. Einstaklingskeppni Lífshlaupsins er í gangi allt árið og gefst þátttakendum kostur á að vinna sér inn brons-, silfur-, gull-, og platínumerki eftir að hafa náð ákveðnum fjölda daga í hreyfingu.

Næstu almenningsíþróttaverkefni á vegum ÍSÍ eru Hjólað í vinnuna 4.-24. maí og Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 4. júní.