Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Íþróttafræðasvið HÍ fær veglegan styrk til rannsókna

19.03.2015

Veglegur þriggja ára verkefnistyrkur samtals að upphæð 30 milljónir króna kom í hlut vísindamanna Íþróttafræðaseturs Háskóla Íslands á Laugarvatni á dögunum þegar Rannsóknasjóður Íslands (Rannís) úthlutaði styrkjum. Styrkurinn rennur til rannsóknarverkefnisins „Heilsuhegðun ungra Íslendinga“.

Markmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu og langtímabreytingar á heilsufari, hreyfingu, þreki og lifnaðarháttum 15 og 17 ára unglinga (fædd 1999), og meta samband þessara þátta við beinheilsu, námsárangur og svefn. Úrtak rannsóknarinnar samanstendur af þátttakendum úr rannsókninni „Lífsstíll 7-9 ára íslenskra barna“ sem framkvæmd var árið 2006 og 2008 þegar þátttakendur voru 7 og 9 ára. Gögnum verður safnað 2015 og 2017, en þá eru þátttakendur í 10. bekk grunnskóla og á öðru ári í framhaldsskóla. Þrír doktorsnemar og fimm meistaranemar munu vinna við gagnasöfnun og framkvæmd þessa verkefnis á næstu þremur til fimm árum.

Þessi styrkveiting til vísindamanna Íþróttafræðaseturs er mjög athyglisverð, ekki síst í ljósi þess að þetta er 14. rannsóknarstyrkurinn sem fræðimenn HÍ á Laugarvatni fá frá Rannís á síðustu 10 árum, þar af eru fimm verkefnisstyrkir til þriggja ára.