Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Nafnasamkeppni lukkudýrs Smáþjóðaleika

29.01.2015

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur ákveðið að efna til nafnasamkeppni um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleikanna og leita til grunnskólabarna um hugmyndir. Um skemmtilegan leik er að ræða og vonandi taka sem flestir skólar þátt. Hér fyrir neðan eru helstu reglur keppninnar og saga lukkudýrsins. Nánari upplýsingar um Smáþjóðaleikana má finna á heimasíðu leikanna http://www.iceland2015.is/.


Reglur um nafnasamkeppni:

• Þátttökurétt eiga allir 4. – 7. bekkir í grunnskólum landsins.
• Hver bekkur kemur sér saman um eitt nafn.
• Tillögu um nafn ásamt rökstuðningi skal skilað með tölvupósti á info@iceland2015.is fyrir 5. febrúar þar sem fram kemur nafn bekkjar, skóla og ábyrgðarmanns.
• Tekið verður tillit til rökstuðnings með nafni – þ.e. af hverju á lukkudýrið að fá tiltekið nafn.
• Valnefnd skipuð fimm aðilum mun velja nafn á lukkudýrið úr innsendum tillögum. Ef margar tillögur koma inn með vinningsnafninu verður einn bekkur dreginn út og er sá vinningsbekkurinn.
• Laugardaginn 21. febrúar eru 100 dagar í leikana og þá verður nafn lukkudýrsins kynnt á blaðamannafundi ásamt sigurvegara nafnasamkeppninnar – dregið þann dag ef þarf.

Vinningur:
• Tölvubúnaður til skólans að verðmæti 100.000 krónur frá Advania.
• Eitt lukkudýr til eignar fyrir hvern nemanda í bekknum.
• Lukkudýrið kemur í heimsókn í skólann.
• Heiðurinn af því að eiga hugmyndina að nafni lukkudýrsins.

Saga um fæðingu lukkudýrsins má sjá á heimasíðu leikanna hér