Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Fjarnám í þjálfaramenntun - skráning í gangi!

28.01.2014

Fjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar og er skráning í fullum gangi.  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar íþróttahreyfingarinnar og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Meðal efnis er kennslufræði íþrótta, íþróttasálfræði, íþróttameiðsl, skipulag íþróttaþjálfunar, næringarfræði íþrótta, uppbygging líkamans, prófun á þoli, styrk, hraða o.fl.  Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 17. febrúar og fjarnám 2. og 3. stigs hefst 24. febrúar.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Ítarlegri umfjöllun um fjarnámið má finna í annarri frétt hér á síðunni.

Allar upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ veitir Viðar Sigurjónsson á vidar@isi.is og/eða í síma 460-1467.