Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Haustfjarnám í þjálfaramenntun!

13.09.2013

Haustfjarnám 1. og 2. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í byrjun október og stendur skráning yfir.  Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár.  Sumarið 2013 voru 45 nemendur/þjálfarar sem hófu nám á 1. stigi!  Hvað gerist á haustönninni?  

Fjarnám 1. stigs hefst mánudaginn 7. október nk. og fjarnám 2. stigs hefst mánudaginn 14. október.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Við skráningu þarf að gefa upp fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer og að sjálfsögðu á hvort námskeiðið er verið að skrá.  Þátttökugjald á 1. stigið er kr. 25.000.- en kr. 18.000.- á 2. stigið og eru öll námskeiðsgögn innifalin.  Námið á 1. stigi tekur 8 vikur en 5 vikur á 2. stigi.  Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur.

Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun beggja stiga gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Allir sem lokið hafa grunnskólaprófi eru gjaldgengir á 1. stigið og til að komast á 2. stig þarf þátttakandi að vera 18 ára, hafa lokið 1. stigi hjá ÍSÍ, hafa 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari/leiðbeinandi og gilt skyndihjálparnámskeið.  Sá möguleiki er fyrir hendi að taka skyndihjálparnámskeiðið á meðan á námi stendur og einnig er möguleiki á að fá fyrri þjálfunarreynslu metna.  Sérgreinahluta þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar/þátttakendur hjá viðkomandi sérsamböndum.  Námið á 1. stigi samsvarar ÍÞF 1024 í framhaldsskólum landsins og er því metið í báðar áttir, milli ÍSÍ og framhaldsskólanna.

Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ eru fúslega veittar hjá Viðari Sigurjónssyni skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.