Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
16

Fjölmennur hópur þátttakenda á Smáþjóðaleika í Luxembourg

22.05.2013

Mánudaginn 27. maí verða 15. Smáþjóðaleikar Evrópu settir í Luxembourg.  Ísland sendir þátttakendur á leikana sem munu keppa í öllum þeim 11 íþróttagreinum sem eru á dagskrá.  Er fjöldi þátttakenda frá Íslandi 125 íþróttamenn, 47 þjálfarar/liðsstjórar/fagteymi og fararstjórn, 9 dómarar auk fjölmiðla og gesta.

Keppni hefst þriðjudaginn 28. maí og henni lýkur laugardaginn 1. júní þegar lokahátíð leikanna fer fram. 

Hópurinn fer erlendis sunnudaginn 26. maí og heimkoma er sunnudaginn 2. júní.

Aðalfararstjóri íslenska hópsins er Friðrik Einarsson, formaður Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ.  Friðrik hefur áður verið fararstjóri fyrir hönd ÍSÍ á Vetrarólympíuhátíðum Evrópuæskunnar.