Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Síðustu dagar Ólympíumóts fatlaðra

06.09.2012

Einn keppnisdagur er eftir hjá íslensku þátttakendunum á Ólympíumóti fatlaðra í London.  Helgi Sveinsson frjálsíþróttakappi keppir í spjótkasti og 100 m hlaupi á morgun, þann 7. september.  Góður árangur hefur náðst hjá íslensku keppendunum og þar ber auðvitað hæst árangur Jóns Margeirs Sverrissonar gullverðlaunahafa í 200 m skriðsundi í flokki S1, flokki þroskahamlaðra, en Jón Margeir setti, eins og alkunna er, bæði heimsmet og Ólympíumótsmet í sundinu. Frábær árangur hjá þessum unga og efnilega sundmanni sem þarna vann sitt fyrsta gull á Ólympíumóti en Ísland hefur ekki náð gullverðlaunum á slíku móti síðan árið 2004, þegar Kristín Rós Hákonardóttir sundkona og Jón Oddur Halldórsson frjálsíþróttamaður unnu til verðlauna.  Frekari upplýsingar um árangur íslensku keppendanna og lífið í Ólympíuþorpinu er að finna á www.ifsport.is .

Frábær stemming hefur verið á mótinu og gríðarlega góð aðsókn á viðburði.  Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ er nú stödd í London til að fylgjast með síðustu keppnisdögum mótsins.  Myndin sem hér fylgir er af íslenska hópnum ásamt velferðarráðherra, Guðbjarti Hannessyni og Sveini Áka Lúðvíkssyni formanni Íþróttasambands fatlaðra.